Töskutvenna: Kastrup 2 helgartaska og Sonderborg bakpoki - svört
Kastrup 2 helgartaska & Sonderborg bakpoki í svörtu leðri á tvennutilboði. Fullt verð er 102.800 kr. en þær fást nú saman á 79.900 kr.
Kastrup 2:
Tímalaus hönnun einkennir Kastrup 2 helgartöskuna frá dbramante1928. Hún er handgerð úr fullkorna leðri (full-grain leather) og er tilvalin í styttri ferðalög eða ræktina.
Á henni eru leðurhandföng og stillanleg axlaról sem hægt er að taka af. Tveir renndir vasar að utanverðu og vel skipulögð innri hólf í fallega fóðraðri töskunni.
Tveggja ára ábyrgð.
Upplýsingar um vöru:
Mál: H27,0 x B57,0 x D25,0cm
Þyngd: 1.430kg
Sonderberg er fágaður og nútímalegur bakpoki/tölvutaska frá dbramante1928. Handgerð taska úr hágæða fullkorna leðri (full-gran leather) með stillanlegum axlarólum og vel skipulögðum fóðruðum hólfum að utan og innan. Bólstrað hólf fyrir fartölvu allt að 16” að stærð.
Tveggja ára ábyrgð.
Innri mál: H38,0 x B35,0 x D3,0cm
Mál: H40,0 x B30,0 x D11,0cm
Þyngd: 0,950kg
ATH. Langar þig í töskurnar í sitt hvorum litnum? Sendu okkur tölvupóst á pantanir@navia.is og láttu okkur vita hvaða lit þú vilt á töskurnar þínar. Þær eru til í svörtu og koníaksbrúnu leðri.